Einn mesti ávinningurinn af nýjum Landspítala verður sameining starfseininga á einum stað. Í svonefndum meðferðarkjarna eða aðalbyggingu spítalans sameinast öll þyngsta og tæknivæddasta starfsemi sjúkrahússins.
Ljóst er að fyrirhuguð nýbygging Landspítala við Hringbraut og sameining sýklafræðideildarinnar á einn stað í nýju rannsóknarhúsi spítalans mun hafa í för með sér umtalsverðan sparnað á rekstrarfé.
Markviss skref hafa verið tekin síðustu ár í undirbúningi vegna endurnýjunar Landspítala og okkur ætti ekki að vera neitt að vanbúnaði. Þetta kemur fram í Fréttablaðsgrein Sivjar Friðleifsdóttur, alþingismanns og fyrrverandi heilbrigðisráðherra um byggingu nýs Landspítala.
Mikilvægt er að starfsemi Landspítala verði í fullum gangi meðan endurnýjun spítalans á lóð hans við Hringbraut stendur yfir. Það er ein af mörgum ástæðum þess að óraunhæft væri að reisa spítalann á norðurhluta Landspítalalóðar.
Eining ríkir hjá borgarfulltrúum í Reykjavík um mikilvægi þess að byggja upp Landspítala til framtíðar við Hringbraut. Ítarlega hefur verið farið yfir staðarvalið og niðurstaðan verið sú að uppbygging við Hringbraut sé besti kosturinn.
Hátt í hundrað gripir sem fundust við fornleifauppgröft á lóð Landspítala við Hringbraut hafa verið færðir Þjóðminjasafni. Gripirnir, sem flestir eru úr keramik og gleri, fundust við fornleifarannsóknirnar á lóðinni í fyrrahaust.