Fréttir
Fyrlestur á vegum NLSH á degi verkfræðinnar
Þann 19. apríl síðastliðinn stóð Verkfræðingafélag Íslands fyrir degi verkfræðinnar, en þá halda sérfræðingar fyrirlestra um margvísleg verkfræðileg málefni, og spanna vítt svið. Einn þeirra var fyrirlestur Ásbjarnar Jónssonar, sviðsstjóra framkvæmdasviðs NLSH og bar hann yfirskriftina „5D framkvæmdaeftirlit og áætlanagerð“ en þar er er verið að vísa til þess að tengja saman BIM 3D, tíma (4D) og fjárhag (5D).
Lesa meiraNLSH vinnur að frumathugun vegna nýbyggingar fyrir geðþjónustu Landspítalans
NLSH hefur ráðið sænsku arkitektastofuna White Arkitekter til að aðstoða við gerð þarfagreiningar en þau hafa umtalsverða reynlu við hönnun bygginga fyrir geðþjónustu. Staðarval fyrir starfsemina er einnig hluti af vinnunni.
Lesa meiraStaðan á Rannsóknahúsinu
Vinna við undirstöður er í góðum gangi og á áætlun. Verktaki hefur unnið við að hreinsa klöpp og steypa ásteypulag undir undirstöður sem er að mestu komið.
Lesa meira